Um Spark
Spark varð til út frá einni athugun: fólk situr á námskeiðum um gervigreind, kinkar kolli, og breytir svo engu í vinnunni sinni daginn eftir.
Ástæðan er sjaldnast áhugaleysi. Hún er sú að dæmin á námskeiðinu eiga ekkert skylt við verkefnin sem bíða í pósthólfinu. Það er langt á milli þess að sjá einhvern skrifa markaðstexta fyrir ímyndaða kaffihúsakeðju og þess að sitja með raunverulegan viðskiptavin sem vill fá tíu fyrirsagnir fyrir hádegi.
Spark snýr þessu við. Við byrjum á verkefnunum sem eru raunverulega á borðinu hjá þínu fyrirtæki og byggjum námskeiðið utan um þau. Æfingin er ekki æfing heldur vinna sem hvort eð er þurfti að vinna.
Við erum lítil eining og framleiðum fá námskeið í einu: tilbúin námskeið á íslensku sem hver sem er getur keypt, og námskeið sem eru sniðin að einu fyrirtæki og verða ekki fjöldaframleidd.
Þórarinn Hjálmarsson
Stofnandi Spark og ábyrgðarmaður námskeiða
Þórarinn fer yfir hvert handrit og hverja æfingu áður en námskeið fer í loftið, og fyrirspurnir á hallo@sparkwithai.app berast honum beint. Spark er rekið af Neðri Hóli Hugmyndahúsi ehf.
Stutt slær langt
Stuttur hluti sem er horft á er meira virði en fjörutíu mínútna fyrirlestur sem er opnaður og lokaður.
Æfing slær útskýringu
Fólk lærir af því að gera hlutinn einu sinni, ekki af því að heyra hann útskýrðan þrisvar.
Framvinda er staðreynd
Engin merki, engin stig, engin verðlaun. Bara hvort þú ert búinn eða ekki.