Fara beint í efnið
Spark
Skrá inn
Lagalegt

Persónuvernd

Hvað við söfnum, hvers vegna, hversu lengi og hvernig þú fær það eytt. Uppfært 11. október 2026.

Hver ber ábyrgðina

Spark er rekið af félaginu Neðri Hóll Hugmyndahús ehf., kt. 470126-2480, Álfhólsvegi 97, 200 Kópavogi. Félagið ber ábyrgð á þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem hér er lýst. Spurningar um hana sendir þú á hallo@sparkwithai.app.

Hverju við söfnum

Netfang, nafn og heiti fyrirtækis. Þegar þú notar námskeið söfnum við hvaða myndbönd þú hefur horft á, hversu langt, og svörunum sem þú sendir inn í æfingum. Við söfnum ekki staðsetningu, tengiliðum eða neinu úr öðrum kerfum þínum. Við skráum líka hvenær námskeið var fyrst opnað í aðgangi þínum eða fyrirtækisins.

Hvers vegna

Netfangið til að skrá þig inn, því við notum ekki lykilorð. Framvindan til að þú byrjir þar sem þú stoppaðir. Svörin til að gefa þér endurgjöf. Hvenær námskeið var fyrst opnað, vegna kaupa sem gerð voru 11. október 2026, þegar rétturinn til að falla frá kaupum féll niður við opnun; aðeins við sjáum það, við hlið pöntunarinnar.

Á hvaða grundvelli

Innskráning, framvinda, svör og endurgjöf eru nauðsynleg til að veita þjónustuna sem keypt var, af þér eða fyrirtækinu sem bauð þér (samningur). Að fyrirtækið sjái stöðu sína fólks byggir á lögmætum hagsmunum þess af að fylgja þjálfuninni eftir, og nær aldrei til textans sem þú skrifar. Fyrirspurnir, varnir gegn misnotkun og öryggi vefsins byggja á lögmætum hagsmunum okkar. Reikningar og bókhald byggja á lagaskyldu samkvæmt lögum um bókhald. Opinber staðfesting á námskeiðslokum byggir á samþykki þínu, sem þú getur dregið til baka hvenær sem er. Saga aðgangsins og skráning á því hvenær námskeið var fyrst opnað byggja á lögmætum hagsmunum okkar af því að geta gert grein fyrir hvað gerðist og hvort réttur til að falla frá kaupum sé fallinn niður. Áminningar um að aðgangur sé að renna út eru hluti af þjónustunni sem keypt var.

Fyrirspurnir og reikningar

Ef fyrirtæki spyrst fyrir um námskeið skráum við heiti þess og, ef það fylgir, nafn, hlutverk og netfang þess sem hafði samband, ásamt stuttri athugasemd um samtalið, til að geta svarað og fylgt fyrirspurninni eftir. Sá sem biður um námskeið á sölusíðu skilur eftir nafn og netfang í sama tilgangi. Sá sem sendir okkur skilaboð í gegnum sambandsformið skilur eftir nafn, netfang, heiti fyrirtækis ef hann vill og skilaboðin sjálf, í sama tilgangi. Við eyðum fyrirspurn 24 mánuðum eftir síðustu samskipti um hana, eða fyrr ef þú biður um það. Reikningar bera heiti greiðanda, lýsingu og upphæð. Reikningur sem við stofnum í Payday fyrir fyrirtæki eða skóla ber líka kennitölu og netfang greiðanda, sem fara til Payday með honum. Þeir eru hluti af bókhaldsgögnum félagsins, sem lög um bókhald gera ráð fyrir að séu varðveitt í sjö ár.

Greiðslur

Þegar þú kaupir námskeið á sölusíðu greiðir þú á greiðslusíðu Teya, sem er færsluhirðir okkar. Nafn þitt, netfang og upphæðin fara til Teya með pöntuninni; kortaupplýsingar fara beint til Teya og við sjáum þær aldrei. Sjálf geymum við nafn, netfang, námskeiðið, verðið og færslunúmer Teya, svo hægt sé að staðfesta greiðsluna og loka aðganginum ef hún er bakfærð. Reikningur fyrir kaupunum er gerður í Payday, bókhaldskerfi okkar, sem fær nafn þitt, netfang, námskeiðið, upphæðina og tilvísun pöntunarinnar og sendir þér reikninginn í tölvupósti; hann er geymdur í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald. Pöntuninni er eytt með aðganginum, tólf mánuðum eftir að hann rennur út, eða fyrr ef þú biður um það. Ef þú biður um að reikningurinn sé gefinn út á fyrirtæki eða skóla fara nafn þess og kennitala til Payday í stað þinna. Við geymum líka hvaða útgáfu skilmálanna þú samþykktir, og hvenær, og að þú óskaðir eftir aðgangi strax.

Hvað eigandinn sér

Sá sem stýrir aðgangi fyrirtækisins sér nafn þitt og netfang, hvort þú hefur þegið boðið, hversu mikið þú hefur horft á hvern hluta og hversu margar æfingar eru staðnar. Hann sér ekki textann sem þú sendir inn. Það er ákvörðun sem við ætlum ekki að breyta.

Saga aðgangsins

Við skráum hver bauð hverjum og hvenær, hver var fjarlægður, hvenær boð var þegið og hvenær hluta námskeiðs var lokið, ásamt breytingum á sætum, námskeiðum og aðgangstíma fyrirtækisins, og hvenær við skoðuðum námskeið eins og þú sérð það til að aðstoða þig. Skráin geymir netföng og tímasetningar, aldrei það sem þú skrifar, og aðeins við sjáum hana. Við notum hana til að svara spurningum um aðganginn síðar. Henni er eytt með öðrum gögnum fyrirtækisins, nema færslum um kaupin sjálf (námskeið, verð og netfang kaupanda) og um reikninga og greiðslur, sem eru hluti af bókhaldsgögnum, og skráningu á því að gögnum var eytt.

Tölvupóstur frá okkur

Við sendum aðeins póst sem tengist aðganginum, til dæmis boð, innskráningarhlekki, staðfestingar á kaupum og svör við því sem þú sendir okkur. Þegar 30 dagar eru eftir af aðganginum, og aftur þegar 7 eru eftir, minnum við þann sem stýrir aðgangi fyrirtækisins á að hann sé að renna út, eða þig ef þú keyptir aðganginn sjálf(ur). Í hverri áminningu er hlekkur til að afþakka þær. Afþakkir þú þær geymum við það val undir lyklaðri tætingu netfangsins, ekki netfanginu sjálfu, á meðan Spark starfar, svo þær hefjist ekki aftur. Það byggir á lögmætum hagsmunum okkar af að virða val þitt.

Hvað við sendum áfram

Svör í æfingum eru send til þess sem les þau yfir, mállíkans hjá Google. Þau eru ekki notuð til að þjálfa líkanið. Netfang, nafn og heiti fyrirtækis fara til Resend, póstþjónustunnar sem sendir boð og innskráningarhlekki, og póstur sem þú sendir okkur fer sömu leið. Framvinda og svör eru geymd hjá Google Cloud innan Evrópusambandsins, vefurinn keyrir hjá Vercel í Frankfurt og myndböndin eru afgreidd frá Bunny. Innskráningarþjónustan og mállíkanið eru hjá Google og ekki bundin við Evrópu, og Resend og Vercel eru bandarísk fyrirtæki, svo sum gögn geta farið út fyrir Evrópska efnahagssvæðið. Sá flutningur byggir á gagnaflutningsramma ESB og Bandaríkjanna (EU-U.S. Data Privacy Framework) þar sem þjónustuaðilinn er vottaður samkvæmt honum, og annars á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB.

Hversu lengi

Á meðan fyrirtæki eða einstaklingur hefur aðgang, og í tólf mánuði eftir það svo hægt sé að taka upp þráðinn ef aðgangur er endurnýjaður. Þá er öllu eytt: svörum, framvindu og aðgangi hvers og eins, nema staðfestingum á námskeiðslokum sem þú hefur búið til og því sem lýst er undir Saga aðgangsins. Beiðnir um aðgang og reikningar eru geymdar til að sýna hvað var samið um, reikningar í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald. Afrit af gagnagrunninum eru geymd í fjórtán vikur, svo gögnin hverfa líka úr þeim innan þess tíma.

Öryggi og annálar

Til að verjast misnotkun teljum við tilraunir til innskráningar, kaupa og innsendinga. Talningin er geymd undir tætikóða af netfangi eða IP-tölu, og henni er eytt sjálfkrafa innan tveggja sólarhringa. Komi upp villa á vefnum skráum við hvar hún varð, án innskráningarhlekkja, og eyðum skráningunni eftir 30 daga. Vercel, sem hýsir vefinn, heldur þjónustuannála með IP-tölu í skamman tíma. Ef póstur frá okkur kemst ekki til skila skráum við netfangið og efni póstsins, til að geta lagað netfang á pöntun, og eyðum því eftir 90 daga.

Staðfesting á námskeiðslokum

Ef þú lýkur námskeiði og býrð til staðfestingu verður til opinber síða með nafninu sem þú gafst upp, heiti námskeiðsins, dagsetningu og viðmiðunum sem þú uppfylltir, og þú færð hlekkinn í tölvupósti. Hver sem hefur slóðina getur opnað síðuna. Hún er ekki skráð hjá leitarvélum. Staðfestingin er geymd eftir að aðgangur þinn rennur út og öðrum gögnum er eytt, þar til þú dregur hana til baka eða biður um að gögnum þínum sé eytt.

Réttur þinn

Þú getur beðið um afrit af öllu sem við höfum um þig, látið laga það sem er rangt, fengið því eytt, takmarkað vinnslu þess, andmælt vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, og fengið gögn sem þú lést okkur í té á algengu, tölvulesanlegu sniði. Sendu línu á hallo@sparkwithai.app og við svörum innan þrjátíu daga. Þú getur líka kært til Persónuverndar.

Kökur

Ein kaka heldur þér innskráðum. Ef þú velur tungumál eða þema á prófílnum geyma tvær kökur það val í eitt ár. Opni vefurinn setur engar kökur; þemavalið þar er geymt í vafranum sjálfum. Engar kökur frá þriðja aðila og engin auglýsingamæling. Svar í æfingu sem þú hefur skrifað en ekki sent er geymt í vafranum þínum þar til þú sendir það, í mesta lagi í 30 daga, og fer ekki til okkar fyrr.