Fara beint í efnið
Spark
Skrá inn
Lagalegt

Skilmálar

Hvað þú kaupir, hvað þú greiðir, hvernig þú hættir við og hvert þú leitar ef eitthvað fer úrskeiðis. Uppfært 11. október 2026.

Hver selur

Seljandi og rekstraraðili Spark er Neðri Hóll Hugmyndahús ehf., kt. 470126-2480, Álfhólsvegi 97, 200 Kópavogi, skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins (hlutafélagaskrá), virðisaukaskattsnúmer 159950. Netfang: hallo@sparkwithai.app.

Hvað Spark er

Spark er lokaður vefur með námskeiðum um gervigreind. Hvert námskeið er röð myndbanda með æfingum við hliðina. Þú skrifar svar við æfingu og færð stutta endurgjöf.

Myndböndin eru spiluð á netinu og ekki hægt að hlaða þeim niður. Þú þarft nettengda tölvu eða síma með nýlegum vafra. Í flestum æfingum notar þú sjálfur gervigreindartól á borð við ChatGPT, Claude eða Gemini; aðgangur að þeim fylgir ekki og getur kostað sérstaklega hjá þeim sem býður tólið.

Tvenns konar kaupendur

Fyrirtæki kaupa aðgang fyrir starfsfólk sitt samkvæmt tilboði. Einstaklingar kaupa aðgang fyrir sig sjálfa á sölusíðu námskeiðs. Sameiginlegu skilmálarnir hér gilda um hvort tveggja og sérstakir kaflar fylgja fyrir hvorn hóp. Ekkert í skilmálunum takmarkar rétt sem neytendur eiga samkvæmt lögum.

Fyrir fyrirtæki

Sæti og aðgangur

Fyrirtæki fær aðgang að tilteknu námskeiði fyrir umsaminn fjölda sæta í umsaminn tíma. Eitt sæti er fyrir einn mann og má ekki deila. Boð sem bíður svars telst til sæta; þegar manneskja er fjarlægð losnar sætið strax. Aðgangur rennur út á umsömdum degi og framlengist ekki af sjálfu sér.

Greiðsla

Fyrirtæki greiða samkvæmt reikningi með þeim gjalddaga sem þar stendur. Verð í tilboðum er tilgreint með eða án virðisaukaskatts eftir því sem þar kemur fram.

Ábyrgð

Ábyrgð okkar gagnvart fyrirtæki vegna samningsins takmarkast við þá fjárhæð sem fyrirtækið hefur greitt okkur fyrir aðganginn síðustu 12 mánuði áður en tjónið varð. Við berum ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem rekstrarstöðvun, töpuðum hagnaði eða glötuðum gögnum, né á ákvörðunum sem fyrirtæki tekur á grundvelli framvindu starfsfólks eða endurgjafar mállíkans. Takmörkunin gildir ekki um tjón sem við völdum af ásetningi eða stórfelldu gáleysi og nær ekki til neytenda.

Varnarþing

Mál vegna samninga við fyrirtæki skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Fyrir einstaklinga

Hvað þú kaupir

Aðgang að einu námskeiði fyrir þig í 12 mánuði frá þeim degi sem aðgangurinn er veittur (þá sendum við þér innskráningarhlekkinn), hvort sem þú byrjar strax eða síðar. Aðgangurinn rennur þá út og endurnýjast ekki af sjálfu sér. Kaupir þú námskeiðið aftur á síðustu 60 dögum aðgangsins lengist hann um 12 mánuði frá lokadegi hans, og þú skráir þig inn eins og áður. Á sölusíðu námskeiðsins kemur fram hvað það inniheldur, hversu margir hlutar og æfingar eru í því og hversu langt það er. Aðgangurinn er persónulegur og má ekki deila.

Kaupandi þarf að vera 18 ára eða eldri.

Hvernig kaupin fara fram

1. Á sölusíðu námskeiðsins skrifar þú nafn og netfang, hakar við skilmálana og smellir á „Greiða“ með verðinu. Áður en þú greiðir getur þú lagað það sem þú skrifaðir. Viljir þú reikning á fyrirtæki eða skóla skrifar þú nafn þess og kennitölu.

2. Þú greiðir á greiðslusíðu Teya með korti, Apple Pay eða Google Pay. Kaupin eru gerð þegar greiðslan hefur verið staðfest.

3. Þú færð strax boð í námskeiðið og staðfestingu á kaupunum í tölvupósti. Samningurinn er á íslensku og skilmálarnir eru alltaf á þessari síðu.

Verð og greiðsla

Verðið er það sem stendur á sölusíðunni, með virðisaukaskatti, og er greitt einu sinni. Seljandi bætir engum kostnaði við.

Afhending og staðfesting

Þú færð innskráningarhlekk á netfangið sem þú gafst upp; ekkert lykilorð. 12 mánuðirnir reiknast frá þeim degi sem aðgangurinn er veittur, og þá sendum við hlekkinn. Með staðfestingunni á kaupunum sendum við þér í tölvupósti upplýsingar um rétt þinn til að falla frá samningnum, eyðublað til að falla frá samningnum og tengil á þessa skilmála.

Réttur til að falla frá samningi

Þú hefur rétt til að falla frá samningnum án þess að tilgreina ástæðu innan 14 daga. Frestur til að falla frá samningnum rennur út 14 dögum eftir þann dag sem samningurinn var gerður.

Til að nýta réttinn þarftu að tilkynna Neðra Hóli Hugmyndahúsi ehf., Álfhólsvegi 97, 200 Kópavogi, hallo@sparkwithai.app, ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu, til dæmis með bréfi eða tölvupósti. Nota má staðlaða eyðublaðið hér fyrir neðan, en það er ekki skylda. Til að fresturinn teljist virtur nægir að senda tilkynninguna áður en hann rennur út.

Ef þú fellur frá samningnum endurgreiðum við þér allar greiðslur sem við höfum fengið frá þér, án ástæðulausrar tafar og ekki síðar en 14 dögum eftir að tilkynningin berst. Við endurgreiðum með sama greiðslumiðli og þú notaðir, nema þú samþykkir annað sérstaklega. Þú berð engan kostnað af endurgreiðslunni.

Líka eftir að þú byrjar

Þú getur fallið frá samningnum innan 14 daga og færð þá fulla endurgreiðslu, líka þótt þú hafir byrjað á námskeiðinu. Þú berð engan kostnað af því að falla frá honum.

Staðlað eyðublað til að falla frá samningi

Fylltu út og sendu seljanda þessa yfirlýsingu ef þú óskar eftir að falla frá samningnum.

Til: Neðri Hóll Hugmyndahús ehf., Álfhólsvegi 97, 200 Kópavogi, hallo@sparkwithai.app

Ég tilkynni hér með að ég óska eftir að falla frá samningi mínum um veitingu eftirfarandi þjónustu: aðgangur að námskeiðinu ______________________

Sem var pantaður hinn: ______________

Nafn neytanda: ______________________

Heimilisfang neytanda: ______________________

Undirritun neytanda (einungis ef eyðublaðið er á pappír): ______________

Dagsetning: ______________

Ef eitthvað er að

Hafðu samband á hallo@sparkwithai.app ef námskeiðið virkar ekki eins og því er lýst. Við svörum innan fimm virkra daga. Sé námskeiðið gallað getur þú krafist úrbóta, afsláttar, riftunar eða skaðabóta eftir almennum reglum. Ef námskeið er óaðgengilegt í meira en tvo virka daga af okkar sökum lengjum við aðganginn um sama tíma; það skerðir ekki önnur úrræði samkvæmt lögum.

Ef við höfnum kröfu þinni að hluta eða öllu leyti segjum við þér án tafar og skriflega hvert þú getur leitað.

Úrlausn ágreinings

Ef við náum ekki saman getur þú leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105 Reykjavík, island.is/v/kaerunefnd-voru-og-thjonustukaupa. Nefndin er óháð og úrskurðar í ágreiningi neytenda og seljenda.

Samkvæmt lögum bendum við einnig á vettvang Evrópusambandsins til lausnar deilumála um viðskipti á netinu, ec.europa.eu/consumers/odr, þótt framkvæmdastjórnin hafi lagt hann niður. Netfang okkar vegna hans er hallo@sparkwithai.app.

Fyrir alla

Efnið

Námskeiðin eru eign okkar. Þú mátt nota það sem þú lærir í starfi og lífi. Þú mátt líka nota æfingar, fyrirmæli og verkfærakistu námskeiðs með eigin nemendum, í eigin kennslu, og laga þau að henni. Myndböndin má hvorki sýna öðrum, afrita né dreifa, og annað efni má ekki endurbirta eða selja. Það sem þú skrifar sjálfur í æfingum er þitt.

Gervigreind í Spark

Endurgjöf á svörum kemur frá mállíkani og getur verið ónákvæm. Hún er kennslutæki, ekki mat á þér eða starfi þínu. Settu ekki persónuupplýsingar annarra eða trúnaðargögn í æfingasvör. Lýsingar og myndir á sölusíðum eru unnar með gervigreind og yfirfarnar af okkur, sem berum ábyrgð á þeim.

Lokun aðgangs

Við getum lokað aðgangi sem er misnotaður, til dæmis deilt með öðrum, og gerum það ekki án þess að láta vita fyrst og gefa tækifæri til að bæta úr. Eftir að aðgangi lýkur eru gögnum eytt eins og lýst er í persónuverndarstefnunni.

Breytingar á skilmálum

Um kaup gilda þeir skilmálar sem voru í gildi þegar kaupin voru gerð. Breytingar gilda ekki um gerð kaup nema þú samþykkir þær.

Tungumál og vistun

Skilmálarnir eru á íslensku og ensku; komi upp misræmi gildir íslenska útgáfan. Þeir eru alltaf aðgengilegir á þessari síðu.

Lög og varnarþing

Íslensk lög gilda, án þess að skerða vernd sem ófrávíkjanlegar reglur í búsetulandi þínu á Evrópska efnahagssvæðinu veita þér. Neytandi getur höfðað mál þar sem hann á heimilisvarnarþing og verður aðeins sóttur þar.