Spark
Skrá inn
Hvernig það virkar

Hvernig Spark virkar

Fjögur skref frá fyrsta samtali að námskeiði sem starfsfólkið er byrjað að nota.

  1. Við kortleggjum verkefnin

    Stutt samtal um hvað starfsfólkið gerir mest af og hvar tíminn fer.

    Þú þarft ekki að vita hvað gervigreind getur. Það er okkar hlutverk að sjá hvaða verkefni borgar sig að taka fyrst.

  2. Við framleiðum námskeiðið

    Við skrifum æfingarnar og tökum upp myndböndin út frá þínum verkefnum.

    Hvert skref á tímalínunni er merkt: aðgerð, fyrirmæli, skrá eða innsending. Þú færð efnið til yfirlestrar áður en það fer í loftið.

  3. Starfsfólkið horfir og æfir

    Æfingaspjaldið fylgir myndbandinu og starfsfólkið gerir æfinguna strax.

    Hægt er að láta myndbandið gera hlé við hvert skref, svo fólk vinni í takt við kennarann í stað þess að horfa fyrst og gleyma svo.

  4. Þú fylgist með framvindunni

    Yfirlit yfir hverjir hafa horft, hverjir hafa staðist æfingar og hverjir eru ekki byrjaðir.

    Þú sérð stöðuna en ekki það sem fólk skrifaði. Æfingar eiga að vera öruggur staður til að prófa sig áfram.

Inni í hverjum hluta

Hvað er á skjánum

  • Myndband með skjátextumSkjátextar sjálfgefið á, hraðastýring og enginn niðurhalshnappur.
  • Tímalína með skrefamerkjumHvert skref er merkt á tímalínunni. Smellur á merki færir þig beint þangað.
  • Fyrirmæli tilbúin til afritunarSömu fyrirmæli og kennarinn skrifar, í reit sem þú afritar með einum smelli.
  • Innsending og endurgjöfStarfsfólkið límir inn sitt svar og fær stutta endurgjöf á íslensku.