Fara beint í efnið
Spark
Skrá inn
Gervigreindarnámskeið á íslensku

Gervigreindar­námskeið þar sem þú æfir þig á meðan þú horfir

Stutt myndbönd á íslensku og æfingaspjald við hliðina sem fylgir kennaranum skref fyrir skref. Þú sendir inn svarið og færð endurgjöf strax.

Fyrir einstaklinga og kennara

Keyptu námskeið fyrir þig, eða fyrir kennarana í skólanum

Þú kaupir tilbúið námskeið á síðu þess og byrjar strax. Engin uppsetning, ekkert lykilorð.

Skoða námskeiðin
  • Greitt með korti, Apple Pay eða Google Pay, og aðgangur í 12 mánuði.
  • Reikningur á kennitölu fyrirtækis eða skóla, svo hægt sé að færa virðisaukaskattinn.
  • Fyrir hópa gerum við tilboð. Skrifaðu okkur.
Svona lítur það út

Æfingaspjaldið við hlið myndbandsins

Myndir af raunverulegum skjá úr námskeiðinu. Hver æfing birtist á réttum stað í myndbandinu, fyrirmæli eru tilbúin til afritunar, og svar fær endurgjöf strax.

Æfingaspjald með tveimur skrefum, merktum 0:05 og 0:11. Fyrra skrefið er aðgerð með hnappnum Gert, það síðara fyrirmæli með hnappnum Afrita.
Æfingaspjaldið fylgir tímalínunni: aðgerð, fyrirmæli tilbúin til afritunar.
Æfing merkt 0:59 sem biður um að endurskrifa óljósa beiðni. Undir henni er svar nemanda og endurgjöfin Staðið, með tveimur setningum um hvað var vel gert.
Svar við æfingu og endurgjöfin sem kemur strax.
Þrennt sem greinir Spark að

Á íslensku

Myndböndin eru tekin upp á íslensku og kennd á íslensku. Enskur skjátexti er ekki í boði enn.

Æft á meðan horft er

Við hlið myndbandsins er spjald sem fylgir tímalínunni. Þegar kennarinn skrifar fyrirmæli birtast sömu fyrirmæli í spjaldinu, tilbúin til afritunar.

Endurgjöf strax

Starfsfólkið sendir inn svarið sitt og fær tvær til þrjár setningar um hvað vantar. Staðið eða ekki enn, engin stig.

Kennararnir

Kennt af gervigreind, yfirfarið af manneskju

Raddirnar sem kenna eru gervigreind og við segjum það hreint út. Við förum yfir hvert handrit og hverja æfingu áður en námskeið fer í loftið.

Hittu kennarana
Fyrir fyrirtæki

Námskeið úr verkefnum ykkar starfsfólks

Við framleiðum námskeið út frá verkefnunum sem starfsfólkið situr með dagsdaglega, og þú sérð hverjir hafa horft og staðist æfingar.

  1. Við kortleggjum verkefnin

    Stutt samtal um hvað starfsfólkið gerir mest af og hvar tíminn fer.

  2. Við framleiðum námskeiðið

    Við skrifum æfingarnar og tökum upp myndböndin út frá þínum verkefnum.

  3. Starfsfólkið horfir og æfir

    Æfingaspjaldið fylgir myndbandinu og starfsfólkið gerir æfinguna strax.

  4. Þú fylgist með framvindunni

    Yfirlit yfir hverjir hafa horft, hverjir hafa staðist æfingar og hverjir eru ekki byrjaðir.

Næsta skref

Segðu okkur hvaða verkefni eru að taka tímann

Við byrjum á stuttu samtali um það sem starfsfólkið þitt situr með. Út frá því sendum við tillögu að námskeiði og verði.

Hafa samband