Fara beint í efnið
Spark
Skrá inn
Algengar spurningar

Algengar spurningar

Það sem oftast er spurt að áður en ákvörðun er tekin.

Hvað er Spark?

Spark er vettvangur fyrir gervigreindarnámskeið á íslensku. Við hlið myndbandsins er æfingaspjald sem fylgir tímalínunni, svo þú æfir þig á meðan þú horfir. Einstaklingar kaupa tilbúin námskeið á síðu hvers námskeiðs, og fyrirtæki geta líka fengið námskeið framleidd út frá eigin verkefnum.

Eru kennararnir raunverulegt fólk?

Nei. Raddirnar sem kenna námskeiðin eru búnar til með gervigreind, og endurgjöfin á æfingarnar líka. Við förum yfir hvert handrit og hverja æfingu áður en námskeið fer í loftið.

Hvernig eru námskeiðin sniðin að fyrirtækinu?

Við byrjum á samtali um verkefnin sem starfsfólkið situr með dagsdaglega. Út frá þeim skrifum við æfingarnar og tökum upp myndböndin, svo dæmin koma úr þínum rekstri en ekki úr almennu kennsluefni.

Þarf ég að kunna eitthvað fyrir?

Nei. Námskeiðin gera ráð fyrir að fólk sé að byrja. Hvert skref er sýnt á skjánum og sama skref bíður í æfingaspjaldinu tilbúið til notkunar.

Hvað tekur langan tíma að komast í gegn?

Hlutarnir eru stuttir, oftast nokkrar mínútur hver, og á síðu hvers námskeiðs stendur hversu margir þeir eru og hve langt námskeiðið er í heild. Flestir taka einn eða tvo hluta í einu og klára á nokkrum dögum eða vikum.

Á hvaða tungumáli eru námskeiðin?

Myndböndin eru á íslensku. Enskur skjátexti er ekki í boði enn. Viðmótið sjálft er bæði á íslensku og ensku.

Sér stjórnandinn hvað fólk skrifar í æfingunum?

Nei. Eigandinn sér stöðuna, það er hverjir hafa horft og hverjir hafa staðist æfingar, en ekki textann sem fólk sendi inn.

Hvað kostar Spark?

Tilbúnu námskeiðin hafa fast verð á mann, sem stendur á síðu hvers námskeiðs. Verð á námskeiði sem við framleiðum fyrir fyrirtæki ræðst af fjölda sæta og umfangi. Hafðu samband og við sendum tilboð.

Hvernig greiði ég?

Á síðu námskeiðsins greiðir þú með korti, Apple Pay eða Google Pay á öruggri greiðslusíðu Teya. Verðið er með virðisaukaskatti og greitt einu sinni. Þú færð aðgang strax, í 12 mánuði, og staðfestingu í tölvupósti.

Getur vinnuveitandinn eða skólinn greitt?

Já. Þegar þú greiðir getur þú skrifað nafn og kennitölu fyrirtækis eða skóla, og reikningurinn er þá gefinn út á það svo hægt sé að færa virðisaukaskattinn. Fyrir hóp, eða ef greiða á eftir reikningi, skrifaðu okkur og við gerum tilboð.

Get ég fengið endurgreitt?

Já, innan 14 daga frá kaupum, líka þótt þú hafir byrjað á námskeiðinu. Skrifaðu okkur, eða notaðu eyðublaðið í skilmálunum og í kvittuninni.

Má ég nota efnið í minni eigin kennslu?

Já. Æfingarnar, fyrirmælin og verkfærakistu námskeiðsins máttu nota með eigin nemendum og laga þau að kennslunni þinni. Myndböndin eru fyrir þann sem keypti aðganginn og má hvorki sýna öðrum né dreifa.

Hvernig skrái ég mig inn?

Eftir kaupin færðu boð í tölvupósti. Opnaðu hlekkinn og skrifaðu nafnið þitt; þá er aðgangurinn opinn. Eftir það biður þú um innskráningarhlekk með netfanginu og færð hann í tölvupósti; ekkert lykilorð. Ef boðið týnist sendir innskráningin það aftur.