Skilmálar
Þessir skilmálar giltu frá 11. október 2026 til 11. október 2026 og gilda um kaup sem voru gerð á þeim tíma. Skilmálarnir sem gilda núna
Hvað þú kaupir, hvað þú greiðir, hvernig þú hættir við og hvert þú leitar ef eitthvað fer úrskeiðis.
Hver selur
Seljandi og rekstraraðili Spark er Neðri Hóll Hugmyndahús ehf., kt. 470126-2480, Álfhólsvegi 97, 200 Kópavogi, skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins (hlutafélagaskrá), virðisaukaskattsnúmer 159950. Netfang: hallo@sparkwithai.app.
Hvað Spark er
Spark er lokaður vefur með námskeiðum um gervigreind. Hvert námskeið er röð myndbanda með æfingum við hliðina. Þú skrifar svar við æfingu og færð stutta endurgjöf.
Myndböndin eru spiluð á netinu og ekki hægt að hlaða þeim niður. Þú þarft nettengda tölvu eða síma með nýlegum vafra. Í flestum æfingum notar þú sjálfur gervigreindartól á borð við ChatGPT, Claude eða Gemini; aðgangur að þeim fylgir ekki og getur kostað sérstaklega hjá þeim sem býður tólið.
Tvenns konar kaupendur
Fyrirtæki kaupa aðgang fyrir starfsfólk sitt samkvæmt tilboði. Einstaklingar kaupa aðgang fyrir sig sjálfa á sölusíðu námskeiðs. Sameiginlegu skilmálarnir hér gilda um hvort tveggja og sérstakir kaflar fylgja fyrir hvorn hóp. Ekkert í skilmálunum takmarkar rétt sem neytendur eiga samkvæmt lögum.
Fyrir fyrirtæki
Sæti og aðgangur
Fyrirtæki fær aðgang að tilteknu námskeiði fyrir umsaminn fjölda sæta í umsaminn tíma. Eitt sæti er fyrir einn mann og má ekki deila. Boð sem bíður svars telst til sæta; þegar manneskja er fjarlægð losnar sætið strax. Aðgangur rennur út á umsömdum degi og framlengist ekki af sjálfu sér. Um samninga við fyrirtæki má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Greiðsla
Fyrirtæki greiða samkvæmt reikningi með þeim gjalddaga sem þar stendur. Verð í tilboðum er tilgreint með eða án virðisaukaskatts eftir því sem þar kemur fram.
Fyrir einstaklinga
Hvað þú kaupir
Aðgang að einu námskeiði fyrir þig í 12 mánuði frá þeim degi sem aðgangurinn er veittur (þá sendum við þér innskráningarhlekkinn), hvort sem þú byrjar strax eða síðar. Aðgangurinn rennur þá út og endurnýjast ekki af sjálfu sér. Kaupir þú námskeiðið aftur á síðustu 60 dögum aðgangsins lengist hann um 12 mánuði frá lokadegi hans, og þú skráir þig inn eins og áður. Á sölusíðu námskeiðsins kemur fram hvað það inniheldur, hversu margir hlutar og æfingar eru í því og hversu langt það er. Aðgangurinn er persónulegur og má ekki deila.
Kaupandi þarf að vera 18 ára eða eldri.
Hvernig kaupin fara fram
Gilti þegar óskað var eftir aðgangi og greitt eftir reikningi.
1. Á sölusíðu námskeiðsins skrifar þú nafn og netfang og smellir á „Óska eftir aðgangi“. Áður en þú sendir getur þú lagað það sem þú skrifaðir. Beiðnin er ekki bindandi.
2. Við sendum þér strax staðfestingu á að beiðnin hafi borist, og innan eins virks dags reikning og innskráningarhlekk.
3. Kaupin eru gerð þegar þú greiðir reikninginn, með millifærslu á gjalddaga sem þar stendur, 14 dögum eftir útgáfu. Samningurinn er á íslensku. Við geymum beiðnina og reikninginn og sendum þér afrit af hvoru tveggja í tölvupósti; skilmálarnir eru alltaf á þessari síðu.
Þegar kortagreiðsla á vefnum bætist við kemur fram áður en þú pantar hvaða greiðslumáta er tekið við, og pöntunarhnappurinn segir berum orðum að pöntun fylgi greiðsluskylda.
Hvernig kaupin fara fram
Gilti þegar pantað var með reikningi og greiðslukröfu.
1. Á sölusíðu námskeiðsins skrifar þú nafn, netfang og kennitölu, hakar við skilmálana og við að þú óskir eftir aðgangi strax, og smellir á „Panta með greiðsluskyldu“. Áður en þú pantar getur þú lagað það sem þú skrifaðir. Pöntunin er bindandi og henni fylgir greiðsluskylda.
2. Kaupin eru gerð þegar þú pantar. Þú færð strax boð í námskeiðið á netfangið, og reikning í tölvupósti ásamt greiðslukröfu í netbankann þinn. Gjalddagi er pöntunardagurinn og eindagi 14 dögum síðar. Kennitalan er notuð til að stofna kröfuna.
3. Samningurinn er á íslensku. Við geymum pöntunina og reikninginn og sendum þér afrit í tölvupósti; skilmálarnir eru alltaf á þessari síðu.
Hvernig kaupin fara fram
Gilti þegar greitt var með korti.
1. Á sölusíðu námskeiðsins skrifar þú nafn og netfang, hakar við skilmálana og við að þú óskir eftir aðgangi strax, og smellir á „Greiða“ með verðinu. Áður en þú greiðir getur þú lagað það sem þú skrifaðir. Viljir þú reikning á fyrirtæki eða skóla skrifar þú nafn þess og kennitölu.
2. Þú greiðir á greiðslusíðu Teya með korti, Apple Pay eða Google Pay. Kaupin eru gerð þegar greiðslan hefur verið staðfest.
3. Þú færð strax boð í námskeiðið og staðfestingu á kaupunum í tölvupósti. Samningurinn er á íslensku og skilmálarnir eru alltaf á þessari síðu.
Verð og greiðsla
Verðið er það sem stendur á sölusíðunni, með virðisaukaskatti, og er greitt einu sinni. Seljandi bætir engum kostnaði við.
Afhending og staðfesting
Gilti þegar óskað var eftir aðgangi og greitt eftir reikningi.
Þú færð innskráningarhlekk á netfangið sem þú gafst upp; ekkert lykilorð. 12 mánuðirnir reiknast frá þeim degi sem aðgangurinn er veittur, og þá sendum við hlekkinn. Með reikningnum sendum við þér tölvupóst með upplýsingum um rétt þinn til að falla frá samningnum og tengil á þessa skilmála.
Afhending og staðfesting
Gilti þegar pantað var með reikningi og greiðslukröfu.
Þú færð innskráningarhlekk á netfangið sem þú gafst upp; ekkert lykilorð. 12 mánuðirnir reiknast frá þeim degi sem aðgangurinn er veittur, og þá sendum við hlekkinn. Með staðfestingunni á kaupunum sendum við þér í tölvupósti upplýsingar um rétt þinn til að falla frá samningnum, staðfestingu á því að þú óskaðir eftir aðgangi strax, eyðublað til að falla frá samningnum og tengil á þessa skilmála.
Afhending og staðfesting
Gilti þegar greitt var með korti.
Þú færð innskráningarhlekk á netfangið sem þú gafst upp; ekkert lykilorð. 12 mánuðirnir reiknast frá þeim degi sem aðgangurinn er veittur, og þá sendum við hlekkinn. Með staðfestingunni á kaupunum sendum við þér í tölvupósti upplýsingar um rétt þinn til að falla frá samningnum, staðfestingu á því að þú óskaðir eftir aðgangi strax, eyðublað til að falla frá samningnum og tengil á þessa skilmála.
Réttur til að falla frá samningi
Þú hefur rétt til að falla frá samningnum án þess að tilgreina ástæðu innan 14 daga. Frestur til að falla frá samningnum rennur út 14 dögum eftir þann dag sem samningurinn var gerður.
Til að nýta réttinn þarftu að tilkynna Neðra Hóli Hugmyndahúsi ehf., Álfhólsvegi 97, 200 Kópavogi, hallo@sparkwithai.app, ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu, til dæmis með bréfi eða tölvupósti. Nota má staðlaða eyðublaðið hér fyrir neðan, en það er ekki skylda. Til að fresturinn teljist virtur nægir að senda tilkynninguna áður en hann rennur út.
Ef þú fellur frá samningnum endurgreiðum við þér allar greiðslur sem við höfum fengið frá þér, án ástæðulausrar tafar og ekki síðar en 14 dögum eftir að tilkynningin berst. Við endurgreiðum með sama greiðslumiðli og þú notaðir, nema þú samþykkir annað sérstaklega. Þú berð engan kostnað af endurgreiðslunni.
Líka eftir að þú byrjar
Gilti þegar óskað var eftir aðgangi og greitt eftir reikningi.
Þú getur fallið frá samningnum innan 14 daga og færð þá fulla endurgreiðslu, líka þótt þú hafir byrjað á námskeiðinu. Þú berð engan kostnað af því að falla frá honum.
Aðgangur strax og fráfallsréttur
Gilti þegar pantað var með reikningi og greiðslukröfu.
Námskeiðið er stafrænt efni sem er ekki afhent á efnislegum miðli. Þegar þú kaupir hakar þú við að þú óskir eftir því að fá aðganginn strax, áður en 14 daga fresturinn er liðinn, og staðfestir að þú vitir að rétturinn til að falla frá samningnum fellur niður þegar þú byrjar á námskeiðinu, það er þegar þú opnar fyrsta hluta þess (18. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga).
Hafir þú ekki opnað námskeiðið getur þú fallið frá samningnum innan 14 daga og færð þá fulla endurgreiðslu, án kostnaðar. Við staðfestum ósk þína um aðgang strax í tölvupóstinum sem fylgir kaupunum.
Aðgangur strax og fráfallsréttur
Gilti þegar greitt var með korti.
Námskeiðið er stafrænt efni sem er ekki afhent á efnislegum miðli. Þegar þú kaupir hakar þú við að þú óskir eftir því að fá aðganginn strax, áður en 14 daga fresturinn er liðinn, og staðfestir að þú vitir að rétturinn til að falla frá samningnum fellur niður þegar þú byrjar á námskeiðinu, það er þegar þú opnar fyrsta hluta þess (18. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga).
Hafir þú ekki opnað námskeiðið getur þú fallið frá samningnum innan 14 daga og færð þá fulla endurgreiðslu, án kostnaðar. Við staðfestum ósk þína um aðgang strax í tölvupóstinum sem fylgir kaupunum.
Staðlað eyðublað til að falla frá samningi
Fylltu út og sendu seljanda þessa yfirlýsingu ef þú óskar eftir að falla frá samningnum.
Til: Neðri Hóll Hugmyndahús ehf., Álfhólsvegi 97, 200 Kópavogi, hallo@sparkwithai.app
Ég tilkynni hér með að ég óska eftir að falla frá samningi mínum um veitingu eftirfarandi þjónustu: aðgangur að námskeiðinu ______________________
Sem var pantaður hinn: ______________
Nafn neytanda: ______________________
Heimilisfang neytanda: ______________________
Undirritun neytanda (einungis ef eyðublaðið er á pappír): ______________
Dagsetning: ______________
Ef eitthvað er að
Hafðu samband á hallo@sparkwithai.app ef námskeiðið virkar ekki eins og því er lýst. Við svörum innan fimm virkra daga. Sé námskeiðið gallað getur þú krafist úrbóta, afsláttar, riftunar eða skaðabóta eftir almennum reglum. Ef námskeið er óaðgengilegt í meira en tvo virka daga af okkar sökum lengjum við aðganginn um sama tíma; það skerðir ekki önnur úrræði samkvæmt lögum.
Ef við höfnum kröfu þinni að hluta eða öllu leyti segjum við þér án tafar og skriflega hvert þú getur leitað.
Úrlausn ágreinings
Ef við náum ekki saman getur þú leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105 Reykjavík, island.is/v/kaerunefnd-voru-og-thjonustukaupa. Nefndin er óháð og úrskurðar í ágreiningi neytenda og seljenda.
Samkvæmt lögum bendum við einnig á vettvang Evrópusambandsins til lausnar deilumála um viðskipti á netinu, ec.europa.eu/consumers/odr, þótt framkvæmdastjórnin hafi lagt hann niður. Netfang okkar vegna hans er hallo@sparkwithai.app.
Fyrir alla
Efnið
Námskeiðin eru eign okkar. Þú mátt nota það sem þú lærir í starfi og lífi. Þú mátt líka nota æfingar, fyrirmæli og verkfærakistu námskeiðs með eigin nemendum, í eigin kennslu, og laga þau að henni. Myndböndin má hvorki sýna öðrum, afrita né dreifa, og annað efni má ekki endurbirta eða selja. Það sem þú skrifar sjálfur í æfingum er þitt.
Gervigreind í Spark
Endurgjöf á svörum kemur frá mállíkani og getur verið ónákvæm. Hún er kennslutæki, ekki mat á þér eða starfi þínu. Settu ekki persónuupplýsingar annarra eða trúnaðargögn í æfingasvör. Lýsingar og myndir á sölusíðum eru unnar með gervigreind og yfirfarnar af okkur, sem berum ábyrgð á þeim.
Lokun aðgangs
Við getum lokað aðgangi sem er misnotaður, til dæmis deilt með öðrum, og gerum það ekki án þess að láta vita fyrst og gefa tækifæri til að bæta úr. Eftir að aðgangi lýkur eru gögnum eytt eins og lýst er í persónuverndarstefnunni.
Breytingar á skilmálum
Um kaup gilda þeir skilmálar sem voru í gildi þegar kaupin voru gerð. Breytingar gilda ekki um gerð kaup nema þú samþykkir þær.
Tungumál og vistun
Skilmálarnir eru á íslensku og ensku; komi upp misræmi gildir íslenska útgáfan. Þeir eru alltaf aðgengilegir á þessari síðu.
Lög og varnarþing
Íslensk lög gilda, án þess að skerða vernd sem ófrávíkjanlegar reglur í búsetulandi þínu á Evrópska efnahagssvæðinu veita þér. Neytandi getur höfðað mál þar sem hann á heimilisvarnarþing og verður aðeins sóttur þar.